Um okkur
Description

Fréttir

Ráðning þjóðgarðsvarðar á vestursvæði

26.2.2010

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráða dr. Snorra Baldursson í stöðu þjóðgarðsvarðar fyrir Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs með aðsetur á  Kirkjubæjarklaustri.

Snorri er líffræðingur með framhaldsnám í plöntuvistfræði og plöntuerfðafræði, auk kennsluréttinda á framhaldsskólastigi. Hann hefur stundað landvörslu, kennslu og margháttuð rannsókna- og stjórnunarstörf tengd náttúrufræði og náttúruvernd, nú síðast á Náttúrufræðistofnun Íslands.   



Þetta vefsvæði byggir á Eplica