Um okkur
Description

Fréttir

Kynningarfundir vegna verndaráætlunar fyrir vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

19.2.2010

Undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Efni hennar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Þriðjudaginn 23. febrúar í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri
Miðvikudaginn 3. mars í Tunguseli, Skaftártungu

Fimmtudaginn 4. mars á Laugalandi í Holtum

Fundirnir hefjast klukkan 20:00.

Fundargestum gefst kostur á að koma ábendingum og athugasemdum við drögin á framfæri. Sýn heimamanna og annarra hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur í þessari vinnu og því eru allir hvattir til að mæta!

Hér má nálgast útdrátt úr verndaráætluninni, sem fólk er eindregið hvatt til að kynna sér.

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Eiríksdóttir í s. 8998767, netfang ibi@hi.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica