Fréttir
Nafnasamkeppni
Vatnajökulsþjóðgarður –austursvæði efnir til nafnasamkeppni vegna nýrrar gestastofu, sem nú er í byggingu á Skriðuklaustri og opnuð verður í sumar.
Nafnið skal höfða til náttúru austursvæðis Vatnajökulaþjóðgarðs, sem nær frá Jökulsá á Fjöllum til friðlandsins í Lónsöræfum.
Tillögum skal skila í bréfleiðis í umslagi. Þar skal fylgja með, annað lokað umslag með upplýsingum um höfund tillögunnar.
Frestur til að skila tillögum er til 24. febrúar 2010.
Utanáskriftin er:
Vatnajökulsþjóðgarður – nafnasamkeppni
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstöðum
