Beint í leiðarkerfi vefsins.
Svæðisráð vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs boðar til samráðsfunda um Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir nýtt svæði (Langasjó – Eldgjá) sem bættist við þjóðgarðinn sl. sumar með útgáfu reglugerðar nr. 763/2011.
Út er kominn nýr gönguleiðabæklingur fyrir Skaftafell. Í honum eru að finna helstu upplýsingar um Skaftafell, svo sem landslag, náttúrufar, búsetusögu og þjóðgarð.
Lesa meira
Vatnajökulsþjóðgarði barst í gær staðfesting á því að umsókn þjóðgarðsins um aðild að EUROPARC hefði verið samþykkt.
Þrátt fyrir rysjótt veðurfar og öskufjúk með köflum gengu framkvæmdir sumarsins vel og samkvæmt áætlun. Reistur var fyrri áfangi áningaraðstöðu við Laka og er þar nú komið langþráð vatnssalerni. Sýning um þjóðgarðinn var sett upp í félagsheimilinu Kirkjuhvoli í samstarfi við Kirkjubæjarstofu, Vini Vatnajökuls o.fl.
Lesa meiraAf óviðráðanlegum orsökum verður Skaftafellsstofa lokuð næstkomandi föstudag og laugardag, 25. og 26. nóvember. Gestastofan verður opin á ný sunnudaginn 27. nóvember, frá klukkan 11 til 15.
Ráðstefna á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar og umhverfisráðuneytisins um Jökulsárlón verður haldin í Freysnesi fimmtudaginn 17. nóvember frá kl. 13-17. Hún er öllum opin. Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða haldnir um náttúrurfar, þróun lónsins, ströndina á Breiðarmerkursandi, ferðaþjónustu á Suðausturlandi og framtíðarhorfur í vegagerð á svæðinu.
Í tilefni af Dögum myrkurs á Austurlandi verður Snæfellsstofa opin fyrstu tvær helgarnar í nóvember frá 13-15. Afsláttur verður veittur af flestum vörum í versluninni, en í henni er lögð áhersla á vörur úr heimabyggð og nágrenni þjóðgarðsins.
Skaftafellsstofa hefur verið opin alla daga ársins ef undanskildir eru fjórir dagar sem var lokað vegna öskufalls frá Grímsvatnagosinu í maí. Frá því farið var að hafa opið allt árið hefur fjöldi gesta aukist stöðugt flesta mánuði utan háannatímans og má nefna sem dæmi að fjöldi gesta í september jókst um 26% frá því í fyrra og alls um 50% frá árinu 2009.
Lesa meira
Fyrir skömmu gaf Vatnajökulsþjóðgarður út ferðakort fyrir þjóðgarðinn í stærðarhlutfallinu 1:600.000. Á kortið er merkt ýmis starfsemi innan þjóðgarðs svo sem gestastofur, upplýsingastöðvar, gistiskálar, tjaldsvæði og göngusvæði. Einnig eru á kortinu merkt sérstök verndarsvæði innan þjóðgarðs og þeir vegir sem heimilt er að keyra innan hans.
Lesa meiraÁ meðan Ormsteiti stendur er boðið upp á ratleik fyrir fjölskylduna frá Snæfellsstofu á milli 9 og 18. Þeir sem klára ratleikinn eiga möguleika á að vinna til verðlauna á Fljótsdalsdaginn 21. ágúst.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið hefur gefið út reglugerð til staðfestingar á stækkun
Vatnajökulsþjóðgarðs, sem felur í sér friðlýsingu Langasjós, hluta
Eldgjár og nágrennis. Innan þeirra svæða sem reglugerðin tekur til eru
náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa
útivistar-, fræðslu- og vísindagildis þeirra. Umhverfisráðuneytið og
sveitarstjórn Skaftárhrepps gengu frá samkomulagi um þennan stóra áfangi í náttúruvernd og uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs í vetur.
Lesa meira
Dagana 21. - 22. júlí stendur yfir umfangsmikil kvikmyndataka við Dettifoss á nýrri mynd Ridley Scott‘s á vegum Truenorth á Íslandi. Hún fer að mestu eða öllu leyti fram á austurbakkanum í náttúruvættinu, þar sem lokað verður fyrir aðgengi að fossinum.
Eins og alkunna er varð hlaup í Múlakvísl í gær, laugardaginn 9. júlí, og hreif það með sér brúna á þjóðvegi 1. Þjóðvegurinn er því lokaður austan Víkur í Mýrdal og er fyrirséð að svo verði áfram í einhvern tíma. Fjallabaksleið nyrðri er hins vegar fær jeppum og flestum jepplingum.
Lesa meira
Í Skaftárstofu – upplýsingamiðstöð í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri var opnuð sýning sunnudaginn 3. júlí og verður hún opin í allt sumar. Á sýningunni er margt að sjá, þar er m.a. fræðslusýning frá Vatnajökulsþjóðgarði og náttúrusýnasafn Kirkjubæjarstofu.
Lesa meiraSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhjúpaði, á þriðjudaginn síðastliðinn, fyrstu vörðurnar sem marka aðkomu að austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs á Fljótsdalsheiði. Samskonar vörður verða settar upp víðar við mörk þjóðgarðsins. Vörðurnar eru styrktarverkefni frá hollvinasamtökum þjóðgarðsins, Vinum Vatnajökuls.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að fresta Skeiðarárhlaupi til sunnudagsins 24. júlí vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Það sem af er vikunni hefur verið norðaustanátt með tilheyrandi öskufoki af Skaftafellsjökli. Loftraki er kominn niður fyrir 30% og ekkert útlit er fyrir að rigni dagana fyrir hlaup. Skilyrði fyrir víðavangshlaup eru því ekki lengur góð.Því telja mótshaldarar skynsamlegt að seinka hlaupinu.
Lesa meiraÁ morgun, 4. júní, opnar í Skaftafellstofu ljósmyndasýning sem sýnir landslag Vatnajökulsþjóðgarðs á óvenjulegan hátt. Frá árinu 2007 hefur Svavar Jónatansson ferðast hringinn um landið með vöru- og fólksflutningabifreiðum og myndað landslagið út um hliðarrúðuna.
Skaftafellsstofa opnaði á ný í morgun eftir að hafa verið lokuð í fjóra daga vegna eldgoss í Grímsvötnum. Aska féll í Skaftafell í hálfan sólarhring eftir að gosið hófst og var þjóðvegur 1 lokaður beggja vegna Skaftafells. Stíf norðanátt og úrkoma í kjölfarið hafa hins vegar hreinsað mesta öskuna í burt og grænn gróður einkennir nú Skaftafell líkt og önnur sumur.
Lesa meiraEldgos hófst í Grímsvötnum rétt fyrir klukkan 19 laugardaginn 21. maí. Rýma þurfti tjaldsvæðið í Skaftafelli tveimur tímum seinna vegna öskufalls og var gestum beint í félagsheimili Öræfinga, Hofgarð. Öskufall var einnig á vestursvæði þjóðgarðsins og var þjóðveginum milli Skaftafells og Kirkjubæjarklausturs lokað.
Lesa meiraSvæðisráð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs boðar til opins fundar þann 12. maí til að kynna starfsemi á svæðinu og til þess að skapa umræðugrundvöll um stefnu og starfsemi þjóðgarðsins.
Lesa meiraBúið er að opna veg 864, austan Jökulsár á Fjöllum. Opnun vegarins er óvenju snemma á ferðinni þetta vorið, en til samanburðar var vegurinn opnaður 25. maí í fyrra.
Lesa meiraAllt frá árinu 2007 hefur Náttúrustofa Norðausturlands séð um fiðrildavöktun í Jökulsárgljúfrum. Í dag, föstudaginn 15. apríl, voru ljósin tendruð á fiðrildagildru í Ási af Aðalsteini Erni Snæþórssyni, umsjónarmanni verkefnisins, og þótti starfsmanni þjóðgarðsins ekki annað við hæfi en taka mynd í tilefni dagsins.
Lesa meiraÍ tilkynningu um fum um hella var ranglega hermt að hann yrði haldinn annað kvöld. Hið rétta er að hann er í kvöld, 13. apríl.
Lesa meiraSvæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs og þjóðgarðsvörður á vestursvæði auglýsa opna svæðisfundi um þjóðgarðinn og atvinnutækifæri tengd honum.
Á fundinum verða fimm stutt ávörp og umræður á eftir. Fundirnir verða haldnir fimmtudaginn 14. apríl, á Laugalandi í Holtum kl. 16–18 og á Hótel Klaustri kl. 20:30–22:30.
Lesa meiraÁrni B. Stefánsson augnlæknir og hellakönnuður, verður með fræðsluerindi um verndun varðveislu og sýningu hraunhella á Íslandi, hótelinu á Kirkjubæjarklaustri miðvikudaginn 13. apríl 2011, kl. 20.30.
Árni hefur beitt sér fyrir verndun og varðveislu íslenskra hraunhella í fjölda ára. Í ljósi þess að einmitt það að gera helli að sýningarhelli, hefur sýnt sig að vera ein besta leiðin til varðveislu, hefur hann á síðari árum beitt sér fyrir bættu aðgengi almennings að völdum hellum.
Lesa meiraSvæðirráð Norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs boðar til opins fundar til þess að kynna starfsemi svæðisins og til þess að skapa umræðugrundvöll um starfsemi þjóðgarðsins og stefnu. Fundurinn verður haldinn þann 16. apríl n.k., í Gljúfrastofu í Ásbyrgi og hefst kl. 13.00.
Lesa meiraÞriðjudaginn 1. mars s.l. var stofnfundur Fálkaseturs Íslands formlega haldinn í Gljúfrastofu. Grunnhugmyndin að verkefninu byggir á því að nýta einstakar aðstæður í Ásbyrgi og Jökulsárgljúfrum til að fræða almenning um íslenska fálkann, lifnaðarhætti og tengsl hans við aðrar tegundir og þá sérstaklega rjúpuna.
Lesa meiraStjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur, að beiðni umhverfisráðherra, hafið samráðsferli tengt samgöngum í Vatnajökulsþjóðgarði. Gögn um fyrirkomulag þessa samráðs, þ.e. greining á hagsmunaaðilum og samráðsáætlun, eru nú aðgengileg á vef þjóðgarðsins.
Lesa meira
Umhverfisráðherra hefur í dag staðfest Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökuls-þjóðgarðs.
Umhverfisráðuneytið og sveitarstjórn Skaftárhrepps hafa náð samkomulagi um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs innan lögsögu sveitarfélagsins. Samkvæmt samkomulaginu mun verða unnið að friðlýsingu á Langasjó, hluta Eldgjár og nágrennis eins og lagt er til í Náttúruverndaráætlun 2009-2013. Innan þessa svæðis eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa útivistar, fræðslu og vísindagildis svæðisins.
Lesa meiraUmhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi. Námskeiðið er 110 tímar og gjald kr. 120.000. Námskeiðið hefst 17. febrúar og lýkur 20. mars n.k. Kennt er um helgar, milli 10 og 18, og á kvöldin á virkum dögum, milli 17 og 22. Einnig er fimm daga vettvangs- og verkefnaferð.
Lesa meiraMánudaginn 20. desember s.l. voru í fyrsta sinn veittir styrkir á vegum Vina Vatnajökuls - hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs. Alls voru veittir styrkir til 12 verkefna og voru þeir á bilinu frá 120 þúsund krónum upp í tæpar 3,5 milljónir.
Lesa meiraGunnar Sveinbjörn Ólafsson verður varamaður formanns og Þorsteinn M. Kristinsson varamaður varaformanns.
Lesa meiraSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur skipað Kristveigu Sigurðardóttur formann stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og Rósu Björk Halldórsdóttur varaformann.
Til að fagna opnun Hófaskarðsleiðar verður hátíðin Núna fer ég norður! haldin á Þórshöfn dagana 5. - 7. nóvember 2010. Af því tilefni verður opið í Gljúfrastofu sömu daga á milli kl. 13 og 17.
Fimmtudaginn 7. október fór vaskur hópur nemenda úr 5.- 7. bekk Öxafjarðarskóla í um 13 km göngu frá Ásbyrgi í Vesturdal
Lesa meiraFjórir skólar komu í heimsókn í Gljúfrastofu og Skjálftasetur miðvikudaginn 29. september og tóku þátt í verkefninu Fræðsluskjálfta.
Lesa meira
Laugardaginn 25. september verða dansarinn Megan Harrold og tónskáldið og gítaristinn Charlie Rauh með frumflutning á dans- og tónverki í Snæfellsstofu, sem þau hafa unnið að undanfarnar vikur í gallerí Klaustri.
Fimmtudaginn 9. september fylltust Jökulsárgljúfur af orku og kátinu Húsvískra unglinga, þegar 9. og 10. bekkur Borgarhólsskóla sóttu þjóðgarðinn heim, ásamt kennurum, starfsfólki og foreldrum.
Lesa meiraÍ dag var Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra afhent tillaga stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Umhverfisráðherra mun í framhaldinum taka tillöguna til efnislegrar meðferðar.
Lesa meiraSnæfellsstofa, ný gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Austurlandi, verður opin í september.
Vegur F88 á milli þjóðvegar 1 og Herðubreiðarlinda er lokaður vegna mikilla vatnavaxta. Vegagerð bendir fólki á að nota vegi F905 og F910 til að komast í Öskju.
Lesa meiraUm verslunarmannahelgina var efnt til fjölskylduratleiks í Skaftafelli. Vísbendingar hér og þar í Skaftafelli leiddu þátttakendur að bæjarstæði gamla Skaftafellsbæjarins sem búið var í fram á miðja 19. öld.
Vegur F88 á milli þjóðvegar 1 og Herðubreiðarlinda er nú lokaður vegna vatnavaxta í Lindaá norðan Herðubreiðarlinda. Í Öskju (og Herðubreiðarlindir) er fært um vegi F905 og F910. Þó er vatn á veginum við brúnna á Jökulsá við Upptyppinga. Það hefur verið lítið og ekki til vandræða en þegar það náði toppi í gærkvöld var það um 30 cm djúpt. Flæður á Gæsavatnaleið eru ófærar sem stendur. Frekari upplýsingar veitir hálendisfulltrúi á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs í síma 842 4363.
Flæður á Gæsavatnaleið eru ófærar sem stendur, en frekari upplýsingar veita landverðir í Drekagili: 822-5190.
Lesa meiraAllt frá því að Vatnajöklusþjóðgarður tók við vörslu Laka af Umhverfisstofnun árið 2008 hefur verið stefnt að því að byggja nýtt íveruhús fyrir landvörð svæðisins, en hann hefur hafst við í gömlum vegavinnuskúr í Blágiljum. Nýja húsinu var einnig valinn staður í Blágiljum, en þar er fyrir tjaldsvæði og gangnamannaskáli í eigu Skaftárhrepps.
Lesa meiraÍ vikunni voru settar upp ný ílát til flokkunar úrgangs í Skaftafelli. Er um að ræða frumhönnun á kerfi sem unnið er í sameiningu fyrir Umhverfisstofnun, Ferðamálastofu og Vatnajökulsþjóðgarð.
Lesa meiraSnæfellsstofa á Skriðuklaustri var opnuð með viðhöfn í gær, en Snæfellsstofa er nýbyggð gestastofa fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, minjagripaverslun, skrifstofur starfsfólks þjóðgarðsins og sýningin Veraldarhjólið.
Lesa meiraVegna lagfæringa á fjallveg F862 á milli Vesturdals og Dettifoss í Jökulsárgljúfrum verða miklar truflanir á umferð 24. júní til 1. júlí.
Lesa meiraÍ dag var Dagur hinna villtu blóma haldinn víðsvegar um landið, meðal annars í Ásbyrgi og Skaftafelli. Mættu tæplega 20 manns í blómagönguna í Skaftafelli og að vanda var það Hálfdán Björnsson á Kvískerjum sem leiddi hópinn.
Lesa meiraSkeiðarárhlaup fór fram í dag og tóku 20 keppendur þátt í þessu fyrsta víðavangshlaupi í Skaftafelli. Hlaupið var samstarfsverkefni Ungmennafélagsins Sindra, Ríkis Vatnajökuls og Vatnajökulsþjóðgarðs. Styrktaraðilar voru Icelandic Glacial og Eimskip-Flytjandi.
Lesa meiraAuglýst hefur verið tillaga að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Tillagan er aðgengileg á vefnum www.alta.is/vj
Lesa meiraEngin dagskrá er í boði í Jökulsárgljúfrum um páskana og Gljúfrastofa er lokuð. Vegurinn inn í Ásbyrgi (vegur nr. 861) er fær en þess ber að geta að vegurinn er ekki ruddur og lokast auðveldlega í mikilli ofankomu.
Lesa meira