Frostmyndanir í Skaftafelli
Undanfarna tvo vetur (2009/2010 og 2010/2011) hafa verið langir frostakaflar í Skaftafelli og gott tækifæri gefist til að skoða frostmyndanir og hvernig þær koma fram í mismunandi umhverfi. Vissulega geta þær verið fallegar en þær geta einnig verið erfiðar nýgræðingi, rifið upp rætur trjáa og annarra plantna og gert usla í göngustígum.
Eftirfarandi ljósmyndir af frostmyndunum tók Klaus Kretzer og eru þær birtar með leyfi hans.
Fyrsta viðfangsefnið er göngustígur sem liggur lágt í landinu þannig að þar safnast töluvert vatn í rigningum. Efnið í honum er blanda af mold, sandi og fínni möl. Eftir miklar haustrigningar frysti snögglega og smátt og smátt lyftist göngustígurinn upp vegna uppbyggingar frostmyndana. Hér sést hvernig fína efnið liggur ofan á 5 – 12 cm háum klumpum úr ísnálum (myndir 1 - 3).
Mynd 1.
Mynd 2.
Mynd 3.
Það vekur oft undrun að ganga fram á gróðurlaus moldarflög á sumardegi þar sem allsstaðar í kring er blómlegur gróður. Hvað veldur því að hér festir enginn gróður rætur? Þegar slíkt moldarflag á Skaftafellsheiði er skoðað að vetri til þá verður það deginum ljósara að “líf í moldarflagi” er ekki alltaf dans á rósum. Hér er moldarflagið undirlagt af 20 – 30 cm háum súlum úr ísnálum, mismunandi að stærð, lögun og lit (myndir 4 – 7).
Mynd 4.
Mynd 5.
Mynd 6.
Mynd 7.
Í jöðrum flagsins lyftist gróðurþekjan upp, fyrst í heilu lagi, en slitnar svo í sundur þegar ísnálarnar stækka, plönturætur lyftast upp úr jarðveginum og þenjast endanna á milli þar til reynt er til hins ítrasta á þol þeirra og endinn annað hvort losnar eða slitnar. Og skyldi vera nokkur von til að unga plantan sem enn heldur grænum lit sínum lifi af þennan vetur?( myndir 8 – 11).
Mynd 8.
Mynd 9.
Mynd 10.

Mynd 11.
En þrátt fyrir augljósan eyðileggingarmátt frostmyndana, er þetta fyrirbæri sem er endalaus uppspretta undrunar og aðdáunar. Sigur hins smáa á hinu stóra, þess mjúka yfir því harða og hvaða jafnvægislistamaður sem er gæti verið stoltur af slíkum jafnvægisæfingum og stundum ber fyrir augu (myndir 12 - 14).
Mynd 12.
Mynd 13.
Mynd 14.
Frostmyndanir eru hverful og flókin fyrirbæri. Það vekur sífellt undrun að svo viðkvæmt efni getið valdið svo miklum usla. En fegurð þeirra getur einnig verið ólýsanleg í undraveröld vetrarins (myndir 15 og 16).

Mynd 15.
Mynd 16.
