Fræðsla og fróðleikur
Description

Vestursvæði

eldgos-i-vatnajokliFramhlaupsjöklar einkenna vesturhluta Vatnajökuls og þar eru a.m.k. þrjár megineldstöðvar. Fram undan jöklinum eru fjöll, ár, vötn, sandar og eldstöðvar. Grímsvötn eru virkasta eldstöð Íslands.

Bræðsluvatn safnast í stöðuvatnið undir jökli sem yfirfyllist á nokkurra ára fresti og þá verða Skeiðarárhlaup. Bárðarbunga er mikil askja og ein stærsta eldstöð landsins. Önnur askja er austan við Hamarinn. Úr Skaftárískötlunum koma jökulhlaup í Skaftá vegna jarðhita og þar undir eru vötn sem geyma örverur. Heljargjá og eldvirkni á gossprungum einkenna vestursvæðið. Þekktastir eru Lakagígar, 25 km löng röð með um 130 eldvörpum, en þar varð eitt af mestu hraungosum sögunnar árið 1783.

Móbergshryggir úr forsögulegum gosum undir ísaldarjökli liggja fram undan Tungnaárjökli. Gróðurvinjar og söguslóðir eru allvíða, til dæmis í Tómasarhaga undir Tungnafellsjökli, við Bárðargötu um Vonarskarð og í Jökulheimum en þar hafa jöklarannsóknarmenn haft bækistöðvar síðan um miðbik 20. aldar.


Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica