Fræðsla og fróðleikur
Description

Suðursvæði

svartifoss1Stór hluti þess er aðgengilegast allra landsvæða þjóðgarðsins vegna nálægðar við hringveginn. Austast og fjærst þjóðveginum eru Lónsöræfi, eitt skemmtilegasta göngusvæði landsins. Þar eru litfögur fjöll og reisulegir tindar milli jökultungna og fanna, djúpir dalir og kröpp gil ásamt gróskumiklum gróðri. Í Vatnajökli eru fjöll eins og Grendill (1564 m). Allt frá Höfn í Hornafirði að Skeiðarárjökli ganga skriðjöklar niður á láglendið en tindar og fjöll varða hálendið á milli þeirra. Má nefna Goðaborg, Grasgiljatind, Vörðutind, Snjófjall, Birnudalstind og Þverártindsegg við Kálfafellsdal sem er hæstur. Við Skálafellsjökul er gott aðgengi að ferðum um Vatnajökul.

HoffellTHO008Upp af Breiðamerkurjökli rísa jökulsker, m.a. Esjufjöll og Mávabyggðir. Öræfajökull ber höfuð og herðar yfir fjöllin í Vatnajökli. Hann er gamalt en virkt eldfjall með jökulfylltri öskju og mörgum, bröttum skriðjöklum. Fjallið gaus síðast árin 1727 og 1362 en það gos eyddi byggð og gróðurlendi svo um munaði. Upp af öskjubrúninni stendur Hvannadalshnjúkur, hæsti tindur landsins. Svínafellsjökull, Hvannadalshnjúkur og Hrútfjallstindar (1875 m) mynda glæsilegt Alpalandslag sem einungis á að heimsækja með leiðsögn. Hins vegar er ágætt aðgengi að jaðri Svínafellsjökuls og Skaftafellsjökuls. Skaftafell er meðal kjarna þjóðgarðsins. Þar eru skóglendi, heiðar, torfbærinn Sel með fjósbaðstofu og Svartifoss, umlukinn stuðlabergi.

HeinabergTHO006Í Morsárdal er að finna Bæjarstaðarskóg, marglitar jarðmyndanir í Kjós eða Morsárjökul með brakandi jökulfossum. Skeiðarárjökull myndar vesturjaðar suðursvæðisins. Undan honum brjótast Skeiðarárhlaup en þá flæðir vatnið yfir 50 km leið úr Grímsvötnum. Stærstu jökulhlaupin koma fram samfara eldgosum líkt og gerðist árið 1996 þegar um 45.000 tonn af hlaupvatni á sekúndu flæmdust um Skeiðarársand. Hann er með víðáttumestu söndum sinnar gerðar í veröldinni.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica