Austursvæði
Skipta má austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs í þrjá hluta. Vestan Hálslóns eru Brúaröræfi en austan þess allt að Kelduá eru Snæfellsöræfi. Þar austan heitir Hraun.
Hraun er snjóþung, berangursleg og grýtt háslétta austan Múla. Táknar nafnið klapparholt eða urðarrana. Helsta gróðurlendið eru snjódældir þar sem snjómosi og grasvíðir eru ríkjandi tegundir. Smá horn af Hraunum tilheyrir þjóðgarðinum og tengir hann við friðlandið á Lónsöræfum.
Við vesturjaðar Brúaröræfa eru Kverkfjöll. Þau eru með hæstu fjöllum landsins, svipmikil megineldstöð klofin af skriðjökli, með tveimur öskjum og afar fjölbreyttu jarðhitasvæði í Hveradal og víðar. Norðan undir Lindahrauni eru Hvannalindir; gróðurvin í skjóli Lindafjalla, Krepputunguhrauna og Kreppuhryggs.
Á Austursvæði eru Brúarjökull og Eyjabakkajökull þekktir framhlaupsjöklar. Framhlaupin verða vegna þess að flæði íss af ákomusvæðinu niður á leysingasvæðið er ekki nógu öflugt til að viðhalda jafnvægi á ársgrundvelli. Af þessum sökum hækkar efri hluti jökulsins jafnt og þétt á meðan sporðurinn þynnist og hörfar. Jökullinn verður sífellt brattari uns hann hleypur fram til að rétta sig af á ný.
